Heidi Klum mætti ein á rauða dregilinn þegar Emmy-verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Los Angeles. Fréttir bárust af því í síðustu viku að hún og kærasti hennar, Vita Schnebel, væru hætt saman.
Klum og Schnebel voru búin að vera hittast í þrjú og hálft ár en í síðustu viku greindi People frá því að þau hefðu slitið sambandi sínu. „Hlutirnir hafa verið erfiðir að undanförnu,“ sagði heimildarmaður og útskýrði að þau byggju hvort sínu megin á landinu.
Schnebel sem er 31 árs og 13 árum yngri en Klum er listaverkasali. Hann hefur áður verið tengdur við þekktar eldri konur á borð við leikkonuna Demi Moore og fyrirsætuna Elle Macpherson.
Klum var gift tónlistarmanninum Seal í sjö ár og eignuðust þau þrjú börn saman auk þess sem Seal gekk elsta barni Klum í föðurstað. Hjónin skildu árið 2012.
A post shared by Closer Weekly (@closerweekly) on Sep 14, 2017 at 10:24am PDT