Búið spil hjá Rooney-hjónunum?

Fótboltakappinn Wayne Rooney og eiginkona hans Coleen hafa ekki átt …
Fótboltakappinn Wayne Rooney og eiginkona hans Coleen hafa ekki átt sjö dagana sæla undanfarið. Skjáskot Instagram / Coleen Roney

Fótboltakappinn Wayne Rooney hefur verið talsvert á milli tannanna á fólki undanfarið, en fyrir skemmstu var hann handtekinn fyrir ölvunarakstur. Í kjölfarið missti Rooney ökuréttindi sín, auk þess sem hann þarf að sinna samfélagsþjónustu í 100 klukkustundir.

Frétt mbl.is: Ánægð með að Rooney taki út sína refsingu

Þar með var ekki öll sagan sögð, því ung kona að nafni Laura Simpson var farþegi í bílnum sem Rooney ók, en hún hefur viðurkennt að Rooney hafi gert sér dælt við hana.

Eiginkona Rooneys, Coleen, var stödd á Mallorca með þremur ungum sonum þeirra þegar atvikið átti sér stað. Hún virðist síður en svo ánægð með framferði eiginmannsins, en samkvæmt frétt Mirror hefur hún ekki borið giftingarhring sinn upp á síðkastið. Þá birti hún mynd af sér á samfélagsmiðlum á dögunum þar sem enginn hringur var sjáanlegur.

Rooney er þó sagður vilja vinna eiginkonu sína, sem er þunguð af fjórða barni þeirra, aftur á sitt band.

„Coleen er enn afar reið við Wayne, þannig að hann hefur látið lítið fyrir sér fara. Hann hefur þó verið að reyna að sýna henni hversu vænt honum þyki um hana með því að bjóða henni út, þau hafa til dæmis farið saman í bíó. Wayne vonast til að honum takist smám saman að vinna Coleen aftur á sitt band og hlutirnir verði komnir í samt horf um jólin,“ er haft eftir ónefndum heimildamanni.

 Frétt mbl.is: Hvar er giftingarhringurinn?

Giftingarhringurinn er hvergi sjáanlegur.

A day out at Blackpool is always fun!!! 💙🎡🍭🎠💚🍭

A post shared by Coleen Rooney (@coleen_rooney) on Sep 24, 2017 at 11:55pm PDT

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson