Stunduðu ekki kynlíf í heilt ár

Pink og eiginmaður hennar, Carey Hart.
Pink og eiginmaður hennar, Carey Hart.

Söngkonan Pink sagði í viðtali við the guardian að einkvæni sé erfitt en í viðtalinu lýsir hún tilfinningum sínum til eignmanns síns, fyrrum mótorkrossmeirstarans Carey Hart.

Pink segir í viðtalinu að Hart sé kletturinn hennar, hann sé góður maður og góður pabbi. Hún segir þó að það komi tímar þar sem hún hugsi að hún kunni ekki vel við neitt í fari hans, þau eigi ekkert sameiginlegt og hún vilji aldrei sjá hann aftur. 

„Svo ferðu í gegnum tímabil þar sem þið stundið ekki kynlíf í ár. Er þetta dánarbeðið? Eru  þetta lok alls? Vil ég hann? Vill hann mig?“ sagði Pink og viðurkennir að einkvæni sé erfitt. „En þú vinnur að því og það verður gott aftur,“ sagði hún um sambandið. 

Hjónabandið hefur oft komist í kastljós slúðurpressunar en Pink hefur verið opinská hvað varðar erfiðleika í 11 ára löngu hjónabandinu. Hjónin hafa tvisvar sinnum hætt saman en eiga nú saman tvö börn, Willow sem er sex ára og Jameson sem er níu ára. 

Pink.
Pink. mbl.isAFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson