Ef einhver hefur efast um að Beyoncé væri aðaldívan þá minnti söngkonan heldur betur á sig í gær, þriðjudag þegar hún mætti í grænum dívukjól á tónleika.
Söngkonan var heldur betur búin að hafa sig til fyrir styrktartónleika sem tónlistarveitan Tidal sem eiginmaður hennar Jay-Z á stóð að.
Beyoncé er þekkt fyrir kvenlagan líkamsburð sem bara jókst á meðgöngunni. Hún hefur þó verið dugleg að hreyfa sig og fór meðal annars í spinning eftir barnsburðinn. Púlið hefur skilað sér og er hún komin í hörkuform. Það er gífurleg útlitspressa sem fylgir því að vera ein þekktasta kona í heimi.
A post shared by Beyoncé (@beyonce) on Oct 18, 2017 at 1:11am PDT