Stálu dívudóti fyrir fimm milljónir

Mariah Carey gæti þurft að fara í tösku- og sólgleraugnaleiðangur …
Mariah Carey gæti þurft að fara í tösku- og sólgleraugnaleiðangur á næstunni. mbl.is/AFP

Brotist var inn til söngdívurnar Mariuh Carey í vikunni. Þjófarnir munu hafa látið skartgripi Carey vera en tekið því mun meira af sólgleraugum og töskum. 

Samkvæmt TMZ fóru þjófarnir inn um dyr eða glugga á heimili söngkonunnar í Los Angeles en stigi fannst í bakgarðinum. Enginn var á heimili söngkonunnar þar sem Carey er stödd í New York. 

Þrátt fyrir að hafa ekki tekið neitt af rándýrum skartgripum náðu þeir að hafa með sér þýfi að andvirði 50 þúsund Bandaríkjadala sem gera tæplega 5,3 milljónir íslenskra króna. Töskurnar og sólgleraugun sem Carey gengur með eru greinilega ekkert slor. 

Mariah Carey.
Mariah Carey. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson