Bikiníklædd Theron engin kalkúnabolla

Charlize Theron á ströndinni á þakkargjörðarhátíðinni.
Charlize Theron á ströndinni á þakkargjörðarhátíðinni. skjáskot/Daily Mail

Á meðan festir hnepptu frá buxunum eftir kalkúnaofát vestanhafs eyddi leikkonan Charlize Theron þakkargjörðarhátíðinni á strönd í Cabo í Mexíkó. 

Óskarsverðlaunaleikkonan sem komin er á fimmtugsaldurinn sprangaði um ströndina í svörtu bikiníi með rennisléttan maga. Daily Mail greinir frá því að börnin hennar tvö hafi verið með í för en Theron ættleiddi strák árið 2012 og stelpu árið 2015. 

Ólíklegt er að Theron hafi verið búin að borða kalkún og allt það meðlæti sem því fylgir fyrir strandferðina ef hún hefur á annað borð komist í kalkún í Mexíkó. 

Fríið hefur líklega verið kærkomið fyrir Theron sem hefur verið í tökum í Kanda undanfarnar vikur á grínmyndinni Flarsky en grínleikarinn Seth Rogan leikur á móti Theron í myndinni. 

Charlize Theron.
Charlize Theron. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson