Harry hættir að reykja fyrir ástina

Harry er greinilega ástfanginn upp fyrir haus.
Harry er greinilega ástfanginn upp fyrir haus. mbl.is/AFP

Töluverðar breytingar eiga sér stað í lífi Harry Bretaprins, hann er ekki bara að fara gifta sig í vor heldur ætlar hann líka að hætta reykja. Meghan Markle, unnusta Harrys, er þekkt fyrir heilsusamlegan lífstíl og mun hún vera ástæðan fyrir breytingunni. 

Harry sem var þekktur fyrir að skemmtanalíf sitt kom hefur vanið sig á það að reykja sígarettur, föður sínum til mikillar óhamingju. Nú hefur hins vegar konunglegur vinur uppljóstrað að von sé á breytingum. 

„Harry er búinn að lofa að reykja ekki heima. Það er ekki gott fyrir Meghan sem reykir ekki,“ sagði vinurinn í viðtali við Daily Mail og segir að Harry muni þurfa að hætta að fá sér stuttan smók hangandi út í glugga. „Harry hefur hætt fyrir Meghan.“

Harry og Meghan búa í Nottingham Cottage við Kensington-höll. Þrátt fyrir að það sé bannað að reykja í litla kotinu þá hefur prinsinn hingað til létt á reglunum þegar gesti ber að garði og veislur standa sem hæst. 

Það sem fólk gerir ekki fyrir ástina.
Það sem fólk gerir ekki fyrir ástina. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson