Brúðkaupsdagurinn breyttist í martröð

Christine Jo Miller skiljanlega endurtók myndatökuna viku eftir brúðkaupið.
Christine Jo Miller skiljanlega endurtók myndatökuna viku eftir brúðkaupið. Skjáskot/Facebook

Hin bandaríska Christine Jo Miller gekk í hjónaband nýlega en það gekk þó ekki þrautalaust fyrir sig. Brúðkaupsdagurinn, sem flestar verðandi brúðir vilja hafa fullkominn, breyttist í martröð og þurfti Miller meðal annars að fara á bráðavaktina eftir athöfnina og fyrir veisluna. 

Huffington Post greinir frá því að Miller hafi fengið ofnæmi fyrir blómunum sem voru í brúðarvendinum hennar. Hún fékk útbrot og augun bólgnuðu svo mikið að Miller hélt hún yrði blind. 

Miller fann fyrir einkennum þegar fór að líða að hádegi en komst með herkjum í gegnum athöfnina. Hún fór síðan upp á spítala þar sem hún þurfti að fá sprautu í rassinn. Hún mætti svo þremur og hálfum tíma of seint. 

Þegar hún kom í veisluna voru gestirnir búnir að borða og Miller var í náttbuxum því að kjóllinn þvældist fyrir henni þar sem hún sá svo illa með bólgin augun. 

Þrátt fyrir að ná í lokin á veislunni var ekki eintóm gleði hjá Miller. Hún náði að dansa aðeins en borðaði ekkert og segist hafa legið undir borði ömmu sinnar og afa mestallan tímann og grátið og kælt augun. 

„Vegna alls þess sem var í gangi og vegna þess að ég fór í kjólinn 20 mínútum áður en ég gekk upp að altarinu gleymdi ég að vera í skóm í skógarbrúðkaupi,“ sagði Miller. „Slörið datt af tvisvar á meðan ég gekk upp að altarinu, við gleymdum hringjunum og brúðkaupslagið okkar var ekki spilað.“

Christine Jo Miller leið ekki vel á brúðkaupsdaginn sinn.
Christine Jo Miller leið ekki vel á brúðkaupsdaginn sinn. Skjáskot/Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason