Fær ekki að vera eina „drottning jólanna“

Söngdívan Mariah Carey.
Söngdívan Mariah Carey. Skjáskot/Instagram

Á dögunum var lagalegri tilraun söngdívunnar Mariah Carey til að eignast titilinn „Queen of Christmas“ eða „drottning jólanna“ og nota sem vörumerki hafnað í Bandaríkjunum. 

Carey á eitt vinsælasta jólalag allra tíma, lagið All I Want for Christmas is You. Lagið var samið og tekið upp af Carey og Walter Afanassieff. Það kom út 1. nóvember 1994 og hefur notið gríðarlegra vinsælda síðan.

Ekki eina „drottning jólanna“

Fram kemur á vef Page Six að Carey hafi einnig verið neitað um vörumerkin „Princess of Christmas“ eða „prinsessa jólanna“, og skammstöfunina „QOC“. Þessi ákvörðun gerir öðru tónlistarfólki heimilt að nota titilinn, en nokkrir tónlistarmenn töluðu gegn því að Carey fengi titilinn. Þar á meðal er söngkonan Elizabeth Chan, sem hefur notað hann óspart síðustu ár. 

„Jólin eru tími til að gefa, ekki taka, og það er rangt af einstaklingi að reyna að eignast og einoka titil eins og drottning jólanna, það er svívirðileg efnishyggja. Sem sjálfstæður listamaður og eigandi lítils fyrirtækis er ævistarf mitt að leiða fólk saman yfir hátíðarnar, en þannig varð ég kölluð drottning jólanna,“ sagði Chan í yfirlýsingu um málið. 

„Ég ber þann titil sem heiðursmerki og með fullri vitneskju um að titillinn verði  og ætti að vera  veittur öðrum í framtíðinni,“ bætti hún við. Chan hefur gefið út 12 jólaplötur á tónlistarferli sínum, en fyrr í vikunni gaf hún út nýjasta jólasmellinn, Merry Merry

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson