„Ég kveð með stolti, söknuði og hlýju í hjarta“

Marta Nordal tilkynnti að hún ætli að hætta sem leikhússtjóri …
Marta Nordal tilkynnti að hún ætli að hætta sem leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Marta Nordal, leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar, ætlar að hætta og snúa sér að öðrum verkefnum. Hún hefur gengt starfinu síðan 2018 og segir að tíminn hafi verið einstakur. Hún greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni.

„Það er einstök gæfa að fá að starfa við það sem maður elskar og hefur ástríðu fyrir. Eiginlega ein mesta gæfa sem hægt er að hugsa sér. Nú hef ég verið leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar frá árinu 2018 og notið hverrar stundar enda starf þar sem öll mín þekking, reynsla og sýn kemur saman. Þessi tími hefur verið hreint út sagt stórkostlegur, eiginlega ólýsanlegur og þar hefur hvergi borið skugga á þrátt fyrir ýmsar áskoranir.

Það er ekki allt auðvelt sem er einhvers virði. En uppskeran er líka ríkuleg. Þegar draumur verður að veruleika og til verður sýning sem fólk elskar og nýtur þess að sækja, það er ólýsanleg tilfinning. Þetta þekkir allt leikhúsfólk. En lykillinn að velgengni er fólkið á bak við verkefnin,“ segir Marta.

„Leikhús verður alltaf til í samvinnu og sameiginlegri sýn. Það sem stendur upp úr þegar ég lít til baka er mitt einstaka samstarfsfólk hjá MAK og það hæfileikaríka listafólk sem hefur komið að verkefnunum hjá okkur. Þið hafið gefið mér meira en orð fá lýst og gert mér kleift að láta stóra drauma rætast og njóta hverrar mínútu í að búa þá til. Við eigum þetta saman og ég á ykkur allt að þakka.

En allt hefur sinn tíma og hef ég nú ákveðið að hætta sem leikhússtjóri og snúa mér að öðrum verkefnum. Ég er stolt og þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að leiða Leikfélag Akureyrar á undanförnum árum og vonandi átt þátt í að efla það og styrkja. Við höfum sett á svið metnaðarfullar sýningar, stuðlað að fræðslu í leiklistarskólanum og sviðslistabraut MA og átt í margs konar samstarfi við stofnanir og hópa.

Nú stíg ég til hliðar og fæ að fylgjast áfram með Leikfélagi Akureyrar vaxa og dafna. Takk elsku samstarfsfólk fyrir gleðina, hláturinn, ástríðuna og stuðninginn og takk áhorfendur fyrir að koma og njóta.
Ég kveð með stolti, söknuði og hlýju í hjarta,“ segir hún.

Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri og Marta Nordal leikhússtjóri.
Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri og Marta Nordal leikhússtjóri.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson