Hjörtur Traustason er fyrsti þátttakandinn í The Voice sem syngur á íslensku, en í fyrsta þætti beinu útsendinganna söng hann lagið Leiðin okkar allra með hljómsveitinni Hjálmum. Lagið hefur verið vinsælt á Íslandi en er einna þekktast fyrir að vera inngöngulag bardagakappans Gunnars Nelson í UFC bardagakeppninni.
Hjörtur Traustason hefur lítið sem ekkert unnið við söng eða komið fram einn. Hann syngur í kórnum Fjallabræðrum en þar með er söngreynsla hans svo að segja upptalin, þar til nú. Hjörtur er einn af þátttakendum í The Voice á SkjáEinum, en í áheyrnarprufunum sneru allir þjálfararnir fjórir sér við, ákafir í að fá Hjört í sitt lið. Svala Björgvins barðist einna harðast fyrir Hirti, það skilaði sér og Hjörtur gekk til liðs við hana.
Liðið hennar Svölu hefur af mörgum verið talið sterkasta lið þáttanna, svo Hjörtur átti mikið verkefni fyrir höndum að halda sæti sínu í liðinu.
Það gekk eftir og Hjörtur söng sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar í beinu útsendingunum, og var kosinn áfram í undanúrslit The Voice sem fara fram á morgun, föstudag. Þar kemur hann fram ásamt sjö öðrum þátttakendum sem allir berjast um sæti í lokaþætti The Voice.
Lagaval þátttakenda er mikið leyndarmál, en Svala Björgvins lét þó í ljós að Hjörtur ætlaði að leita á nýjar slóðir í tónlistarstefnu og mæta með rokkið á Voice-sviðið á morgun.
Flutningur Hjartar vakti mikla lukku á samfélagsmiðlum, og margir voru sérstaklega hrifnir af ákvörðun hans um að taka íslenskt lag.
Loksins hugrekki til að taka íslenskt lag húrra Hjörtur #voiceisl
— Vidar Gardarsson (@vidargar) November 20, 2015
Hjörtur Traustason... Ég er orðlaus... Það gerist ekki oft. #voiceisl #hjortur
— Stefán Dal (@stefandal) November 20, 2015
Vá Svala er gjörsamlega með'etta. #TeamSvala feykisterkt og erfitt að velja á milli. #voiceisl
— Þórgnýr Dýrfjörð (@thorgnyrd) November 20, 2015
#voiceisl Hjörtur náði fram tárum og gæsahúð! Held að það sé í það allra fyrsta sinn sem Íslendingur kemst það nálægt hjartanu mínu með söng
— María Dís (@MariaDis89) November 20, 2015
Ég væri til í að Hjörtur myndi syngja þetta in my wedding!;) en Gunnar Nelson þyrfti að stökkva upp úr kökunni í endan;) #voiceisl
— Linda Hrönn Hermanns (@lindahermanns) November 20, 2015
Ok #TeamSvala hvað er í gangi með þitt lið!?! Þetta verður erfitt.. Hjörtur er æði! #voiceisl
— Bríet Sunna (@BrietSunna) November 20, 2015
Thumbs up fyrir lagi á ÍSLENSKU #voiceisl
— Hákon Ingi (@HStefansso) November 20, 2015
Alltof sterkt lið hjà svölu. Hjörtur hlýtur samt að taka þetta #voiceisl #teamsvala
— Trausti Salvar (@TraustiSalvar) November 20, 2015