Leitað að G-blettinum

Lengi hefur verið leitað að G-blettinum.
Lengi hefur verið leitað að G-blettinum.

Ítalskir vísindamenn segjast hafa þróað leið til að finna G-blettinn dularfulla með hátíðnihljóðbylgjum. 

Sumar konur segjast fá öfluga fullnægingu ef tiltekið svæði í leggöngunum er örvað en læknavísindin hafa enn ekki getað staðsett þetta svæði. Í tímaritinu Journal of Sexual Medicine segir frá rannsókn, sem Emmanuele Jannini í L'Aquila háskóla á Ítalíu hafi gert á 20 konum.

Tímaritið New Scientist fjallar einnig um þessa rannsókn og hefur eftir vísindamönnunum að þeir hafi fundið svæði þar sem vefurinn er þykkari á konum, sem segjast fá svonefnda leggangafullnægingu. Notaðar voru hátíðnihljóðbylgjur til að mæla stærð og lögun vefjarins og reyndist hann vera þykkari hjá þeim 9 konum, sem sögðust fá fullnægingu af þessu tagi en hjá hinum 11, sem tóku þátt í rannsókninni.

Umfjöllun BBC um G-blettarannsóknina

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson