Margir Bandaríkjamenn láta nú ljósmyndara lagfæra bekkjarmyndir barnanna, að sögn Newsweek. Útstæð eyru verða „venjuleg“, hörundið frísklegra, tennur hvítari og freknur og tannspangir eru þurrkaðar út.
„Ég verð mjög hissa þegar móðir kemur og vill að mynd af barni í 2. bekk sé lagfærð,“ segir Danielle Stephens sem rekur ljósmyndastofur. „Ég á 12 ára stelpu og ef ég bæði um lagfæringu óttast ég að hún færi að halda að hún liti ekki nógu vel út.“