Andmælir kynskiptiaðgerð fanga

AP

Yfirmaður fangelsismála í Massachusett ríkis í Bandaríkjunum segir að það myndi valda óyfirstíganlegum vandamálum og ógna öryggi í fangelsi ef dæmdum morðingja verður veitt heimild til þess að fara í kynskiptiaðgerð.

Þetta kom fram í máli Harold Clarke, yfirmanns fangelsismála, fyrir rétti í vikunni þar sem tekin var fyrir beiðni Michelle Kosilek, áður Robert Kosilek, sem situr inni fyrir morð, um að fá að fara í kynskiptiaðgerð. Segir Clarke að ef Kosilek verði veitt heimild til þess að fara í aðgerð þar sem hann yrði að konu myndi valda ólgu í fangelsinu og hætta væri á að hann yrði fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu annarra fanga. 

Robert Kosilek var dæmdur í lífstíðarfangelsi árið 1990 fyrir að myrða eiginkonu sína. Robert breytti nafni sínu í Michelle árið 1993 og hegðar sér líkt og kona í fangelsinu í Norfolk en þar eru einungis karlkynsfangar. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson