Beitti piparúða í reiðikasti

Það er eins gott að fara varlega í að kvarta …
Það er eins gott að fara varlega í að kvarta undan því að fólk tali of hátt í farsíma Reuters

Kona meiddi sjálfa sig og átján aðra er hún sprautaði piparúða yfir farþega í jarðlestarvagni í Vín í dag. Samkvæmt upplýsingum frá austurrísku lögreglunni reiddist konan er maður kvartaði undan því að hún talaði of hátt í farsíma.

Þeir sem urðu fyrir barðinu á reiði konunnar voru 17 börn og kennari þeirra. Flytja þurfti fólkið allt á sjúkrahús. Maðurinn sem kvartaði við konuna virðist hins vegar hafa sloppið við úðann því hann yfirgaf lestarvagninn þegar lögregla mætti á staðinn. Þau höfðu hins vegar tekist á áður en hún dró brúsann upp.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson