Kynmök til að aflétta bölvun

Tveir ástralskir karlmenn hafa verið kærðir fyrir 230 kynferðisbrot gegn konu sem hélt að á sér hvíldi bölvun. Mennirnir sögðust geta létt bölvuninni af henni með bænastundum, sem fólu í sér að konan reiddi fé af hendi og mennirnir höfðu mök við hana. Talið er að mennirnir tengist fleiri málum af sama toga.

Konan leitaði hjálpar mannanna þar sem hún taldi konu í samfélagi grískra Ástrala hafa lagt svartagaldursbölvun á sig og fjölskyldu sína. Annar mannanna sagðist vera háttsettur innan grísku rétttrúnaðarkirkjunnar og að hann hefði bein samskipti við engla.

Buðust mennirnir til að stýra bænastundum með konunni, sem hún segist hafa þegið þar sem hún óttaðist að bölvunin gæti haft hræðilegar afleiðingar fyrir fjölskylduna.

„Ég trúði því virkilega að ég og fjölskylda mín værum í hættu og fannst ég virkilega ekki geta annað en reynt að vernda þau,“ sagði konan í sjónvarpsviðtali.

Segist konan hafa greitt á milli 500 og 1.000 ástralska dali fyrir hverja bænastund. Þær hafi falist í því að mennirnir bundu fyrir augu hennar og höfðu við hana mök. Áætlar hún að á fjögurra ára tímabili hafi mennirnir með þessu móti haft af henni jafnvirði fimm milljóna króna.

Grunur um fleiri fórnarlömb

Annar mannanna á yfir höfði sér ákæru vegna samskonar máls og lögregla útilokar ekki að mennirnir hafi leikið sama leikinn víðar. „Við teljum að þessar konur hafi verið fórnarlömb kaldlyndra einstaklinga sem notuðu trúarótta til að stjórna þeim og misþyrma, sér sjálfum til kynferðislegrar ánægju og fjárhagslegs ávinnings,“ segir Gary Bailey aðstoðaryfirlögregluþjónn. „Kynferðisbrot eru svívirðileg, en brotamaður sem skýlir sér á bak við trú er sérstaklega andstyggilegur.“
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson