Karlmannleg kokkabók

Íslenskir hrútspungar gætu vel keppt á alþjóðlegum grundvelli. Myndin tengist …
Íslenskir hrútspungar gætu vel keppt á alþjóðlegum grundvelli. Myndin tengist ekki fréttinni. mbl.is/Árni Sæberg

Út er komin matreiðslubók sem einungis er helguð eistum. Serbneskur áhugakokkur, Ljubomir Erovic hefur safnað saman uppskriftum í bókina sem nefnist The Testicle Cookbook á ensku og er gefin út í stafrænu formi á netinu.

Í bókinni er að finna uppskriftir að flatböku með eistum, djúpsteiktum eistum í deigi og grilluðum eistum ekki er nefnt hvort íslenska útgáfan af súrsuðum hrútspungum sé með í bókinni.

AFP fréttastofan sendi frá sér ítarlega frétt um bókina og er henni greinilega ætlað að fá karlmenn til að súpa hveljur því fréttin hefst á viðvörun þess efnis að viðkvæmir karlmenn ættu að líta undan.

Margar dýrategundir fá að njóta sín í bókinni, þar eru nefndir graðhestar, strútar, naut, svín og kalkúnar en mest lostavekjandi frygðaraukinn mun koma undan lambhrútunum.

Sjá nánar um The Testicle Cookbook - Cooking with balls

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson