Breti nokkur hefur tekið sig til og boðið Ísland til sölu á uppboðsvefnum eBay. Tekið er sérstaklega fram, að hvorki Grænland né Björk fylgi með í kaupunum.
Í norska Dagblaðinu er fjallað um málið og vísað í sölulýsingu þar sem segir m.a., að Ísland, sem Ingólfur Arnarson hafi stofnað árið 874, sé fámennast Norðurlandanna og þar búi 320 þúsund manns á 103 þúsund ferkílómetrum. Landið sé á Mið-Atlantshafshryggnum í Norður-Atlantshafi og því geti Ísland boðið upp á gott loftslag og Íslandshesta en einnig sveiflukennt efnahagslíf.
Um miðnætti í nótt höfðu borist yfir 70 tilboð og var það hæsta 250 þúsund pund, jafnvirði um 5 milljóna.