Tígrisdýr á Viagra

Kínverskir dýragarðshaldarar gefa tígrinum Jing Jing nú Viagra.
Kínverskir dýragarðshaldarar gefa tígrinum Jing Jing nú Viagra.

Tígrisdýr nokkurt í kínverskum dýragarði fær nú stinningarlyfið Viagra og vonast  stjórnendur garðsins til að dýrið verði ákafara til ástaleikja.

Jiujiang-dýragarðurinn í Jiangxi-héraðinu fékk lánað karlkyns tígrisdýr að nafni Jing Jing frá dýragarði í Hebei. Ætlunin var að dýrið makaði sig með hinni fjögurra ára gömlu tígrynju Qi Qi.

Hins vegar virtist Jing Jing hafa ósköp lítinn áhuga á Qi Qi. Dýralæknar voru fengnir til aðstoðar því greinilegt þótti að Jing Jing þyrfti hjálp við að finna í sér náttúruna. Haft var eftir talsmanni dýragarðsins að Qi Qi væri á réttum aldri til mökunar og þó nokkurn tíma hefði tekið að finna henni viðeigandi maka.

Því voru góð ráð dýr, en Kínverjarnir dóu ekki ráðalausir. Nú hafa umsjónarmenn í dýragarðinum aukið næringargildi fæðunnar sem Jing Jing fær og gefa honum Viagra til viðbótar. Nú er það von manna að hitna taki í kolunum milli Jing Jing og Qi Qi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson