Slökkvistöð í ljósum logum

Það þurfti fjölmarga slökkviliðsmenn til að slökkva eldana sem loguðu …
Það þurfti fjölmarga slökkviliðsmenn til að slökkva eldana sem loguðu á stöðinni. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. AP

Eldur kviknaði í slökkvistöð í Japan í vikunni á meðan slökkviliðsmennirnir voru í útkalli. Einn þeirra var hins vegar eftir á stöðinni og var hann að elda kvöldmat þegar honum barst skyndilega neyðarkall. Hann rauk út en gleymdi að slökkva á eldavélinni.

Talsmaður slökkviliðsins í Nagoya segir að það hafi þurft 10 slökkviliðsbíla til að slökkva eldana sem loguðu í stöðinni.

„Við erum stofnun sem á að vera í þeirri stöðu að kenna fólki að umgangast eld. Okkur þykir því leitt að þetta skuli hafa komið fyrir,“ sagði talsmaðurinn og bætti við að slökkviliðsmennirnir muni héðan af láta senda sér mat.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir