Bandaríski heimspekingurinn Adam Shriver vill láta fjarlægja genin sem stýra sársauka í nautgripum og svínum, að sögn Jyllandsposten.
„Dýr sem ekki fá að hreyfa sig almennilega stóran hluta af lífi sínu geta orðið fyrir miklum skaða á liðamótum sem gera má ráð fyrir að valdi sársauka,“ segir Shriver. „Og dýr sem alin eru á óeðlilegu fóðri fá gríðarlegar meltingartruflanir.“ Hann segir engan taka á vandanum vegna þess að hann valdi framleiðendum matvæla engu fjárhagstjóni.
Shriver bendir á að þegar sé búið að einangra gen sem valdi sársauka í músum. En vísindamenn eru efins um að hægt verði að meðhöndla gen stærri dýra á sama hátt. kjon@mbl.is