Fjórburar, fjórburar og svo tvíburar

Darren og Dale Chalk eru rík af börnum. Myndin tengist …
Darren og Dale Chalk eru rík af börnum. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. Reuters

Áströlsk kona, sem hefur eignast fjórbura í tvígang, eignaðist nýverið tvíbura. Konan, hin 31 árs gamla Dale Chalk, og Darren eiginmaður hennar eiga nú 11 börn sem eru öll yngri en sjö ára.

„Við vildum gjarnan eignast fleiri börn, en út frá læknislegu sjónarmiðið þá er þetta orðið gott,“ sagði Darren í viðtali við Courier-Mail. „Við þyrftum að kaupa stærri rútu,“ sagði hann ennfremur.

Árið 2005 var Dale aftur ófrísk af fjórburum. Börnin fæddust í október það ár en þrjú þeirra lifðu af.

Fyrstu fjórburarnir, tveir drengir og tvær stúlkur, fæddust í ágúst árið 2004. Þau munu byrja í skóla á næsta ári. Þá eiga hjónin sex ára gamla stúlku og aðra stúlku sem fæddist árið 2007.

Þau eru sögð hafa gengist undir frjósemismeðferð vegna fjölburafæðinganna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg