Bestu og verstu eldfjallabrandarnir

Eldgosið hefur vakið brandarasmiðinn í mörgum.
Eldgosið hefur vakið brandarasmiðinn í mörgum.

Eldgosið í Eyjafjallajökli og afleiðingar þess hafa orðið ugluspeglum víða um heim tilefni til að búa til brandara. Þessir brandarar eru misgóðir eins og gengur en á vef breska blaðsins Daily Telegraph í dag er listi yfir 10 bestu (og verstu) eldfjallabrandarana sem ganga þessa dagana á netinu.  

Sumir eru illþýðanlegir á íslensku og eru lesendur því beðnir um að taka viljann fyrir verkið.

  • Það er of snemmt að segja eldfjallabrandara um Ísland. Við verðum að leyfa rykinu að setjast.
  • Ég sé að Bandaríkjamenn hafa lýst yfir stríði gegn Íslandi. Svo virðist sem þeir saki Íslendinga um að búa yfir „öskueyðingarvopnum" (weapon of ash eruption).
  • Það var hinsta ósk íslenska hagkerfisins, að ösku þess yrði dreift yfir Evrópu.
  • Ísland fer á hausinn og kveikir síðan í sér. Þetta lyktar af tryggingasvikum.
  • Ísland, við báðum um peninga ekki ösku (cash, not your ash).
  • Þjónn, það er eldfjallaaska í súpunni minni. Ég veit, það er flug(u)bann (no-fly zone).
  • Richard Curtis vinnur að nýrri rómantískri gamanmynd um fólk fast á flugvelli sem verður ástfangið. Vinnuheitið er Lava Actually.
  • Þegar ég kom út úr húsinu í gær lenti poki með frosnum pylsum, súkkulaðiís og fiskifingrum á hausnum á mér. Ég taldi ljóst að þetta væri ofanfall frá Íslandi. 
  • Eldfjall á Íslandi! Hvað kemur næst, jarðskjálftar í  Asda? (Asda er bresk verslunarkeðja líkt og Iceland).
  • Ég vaknaði í morgun og sá að það var þykkt ryklag yfir öllu í húsinu og lykt af brennisteini. En það er bara eins og venjulega, ég er búin að vera gift sama lata slóðanum í 20 ár. 
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson