Vondur danskur bjór

Danir eru miður sín yfir bragðkönnun, sem vefurinn ratebeer.com hefur gert á bjórtegundum en tvær bjórtegundir undir merkjum Tuborg eru á lista yfir 50 verstu bjórtegundir í heimi.

Um er að ræða bjórana T-Beer og T-Beer Citrus frá Carlsberg Group en þeir eru í 29. og 31. sæti á listanum yfir 50 verstu bjóra heims. Að sögn blaðsins Berlingske Tidende eru þessar bjórtegundir ekki lengur á dönskum markaði. 

Versti bjórinn er að mati sérfræðinga ratebeer.com Olde English 800 3.2, sem er framleiddur í Bandaríkjunum. Hann fær þá umsögn, að eftirbragðið sé vont og rammt. „Mér líður eins og verri manni eftir að hafa drukkið hann," er haft eftir kanadískum bjórunnanda. 

Öðru sæti deila léttbjórarnir  Natural Light og Natural Ice.

Ratebeer.com

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson