Pabbi á bar - barn beið í bíl

Myndin tengist ekki efni fréttarinnar
Myndin tengist ekki efni fréttarinnar Reuters

Dómstóll  í bænum Colmar í austur Frakklandi hefur dæmt mann í átta mánaða skiliorðsbundið fangelsi fyrir að hafa skilið fjögurra ára dóttur sína eftir fyrir utan næturklúbb á meðan hann skemmti sér innandyra.

Maðurinn, sem er 36 ára gamall, drakk nokkra lítra af bjór í húsi vinar síns kvöld nokkurt og fór síðan heim þar sem dóttir hans var sofandi.

Hann ákvað að halda út á lífið, setti barnið í bíl sinn og ók að skemmtistað. Þar fór hann inn og hélt áfram við drykkju og dans, en barnið beið í bílnum.

Lögregla kom á vettvang, eftir að vegfarendur höfðu séð barnið ráfa um í nágrenninu. Maðurinn sagðist hafa tekið vanhugsaða ákvörðun og lofaði bót og betrun.

Hann var fundinn sekur fyrir að hafa brugðist skyldum sínum sem foreldri.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú stendur allt og fellur með því að þú sért þolinmóður og berir þig með reisn. Reyndu að vinna í góðum skorpum og hvíla þig inn á milli - þannig kemurðu meiru í verk.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú stendur allt og fellur með því að þú sért þolinmóður og berir þig með reisn. Reyndu að vinna í góðum skorpum og hvíla þig inn á milli - þannig kemurðu meiru í verk.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir