Selur meydóminn í annað sinn

Catarina Migliorini er 21 árs gömul kona frá Brasilíu.
Catarina Migliorini er 21 árs gömul kona frá Brasilíu.

21 gömul kona frá Brasilíu, sem seldi meydóminn á síðasta ári fyrir 780.000 dollara, ætlar að selja meydóminn aftur. Hún heldur því fram að sá sem keypti aðgang að líkama hennar í fyrra hafi aldrei haft samræði við hana og hún sé því enn hrein mey.

Á síðasta ári tók Catarina Migliorini þátt í uppboði á netinu og tók einnig þátt í gerð heimildarmyndarinnar „Virgins Wanted“sem Ástralíumaðurinn Justin Sisely gerði.

Japanskur maður, Natsu, að nafni bauð best, en 14 aðrir menn lögðu einnig fram gild boð.

Í myndskeiði sem Migliorini birti á vefnum segir hún: „Ég er enn hrein mey í öllum skilningi þess orðs og enginn getur sannað neitt annað.“

Migliorini hefur opnað heimasíðu þar sem hún auglýsir meydóm sinn að nýju til sölu.

„Ég hef ákveðið að opna eigin heimasíðu til að bjóða meydóm minn og í þetta skiptið verður þetta alvöru. Þeir sem hafa áhuga, karlar eða konur, geta lagt fram tilboð.“

Migliorini segir í samtali við brasilískan fjölmiðil að ekkert hefði orðið úr sambandinu við hinn japanska Natsu í fyrra.

„Ég hitti Natsu á veitingastað í Sydney. Hann var ekki 53 ára gamall karlmaður eins og Justin Sisely hafði sagt heldur 21 árs gamall Japani. Ég varð undrandi og það varð ekki til neinn samningur á milli okkar,“ sagði Migliorini og bætir við að hún muni segja nánar frá því sem gerðist í bók sem sé væntanleg.

Hún vill ekki svara því hvort einhverjar peningagreiðslur fóru á milli hennar og Natsu.

Móðir Migliorini skilur ekkert í þessu tiltæki dóttur sinnar. „Ég er ekki samþykk þessu, en ég hætti samt ekki að elska hana. En ég skil þetta ekki.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson