Trúðurinn Krusty kann að vera á leið út úr Simpsons-þáttunum ef marka má getgátur aðdáenda um hver lendir undir fallöxinni í fyrsta þætt 26. seríu þáttanna.
Al Jean, aðalframleiðandi þáttanna olli miklu uppnámi þegar hann tilkynnti að þátturinn bæri heitið "Clown in the Dumps" eða „Trúðurinn á haugunum.“ Þá bætti hann við að sá sem raddsetti hinn óheppna íbúa Springfield hefði fengið Emmy-verðlaun fyrir störf sín, nokkuð sem Dan Castellaneta, röddin á bakvið Crusty, hefur fendið.
Simpsons-þættirnir hafa notið mikilla vinsælda um allan heim. Hérlendis er hópur íslenskra Simpsonsaðdáenda virkur á Facebook, þar sem notendur skiptast á gullkornum úr þáttunum.