Þremur Frökkum rænt á Vesturbakkanum

Franska utanríkisráðuneytið tilkynnti í dag að þremur frönskum ríkisborgurum hefði verið rænt í borginni Nablus á Vesturbakkanum í Palestínu í dag. Franska ræðismannsskrifstofan í Jerúsalem vinnur nú að því að gíslarnir verði leystir úr haldi, en ekkert hefur verið gefið út nánar um mannránin eða um hvaða fólk er um að ræða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert