Þýsk systkini berjast gegn lögum sem banna sifjaspell

Mikið er nú fjallað um mál systkinanna Patrick Stuebing og Susan Karolewski í Þýskalandi en systkinin eru elskendur og hafa búið saman í Leipzig í austurhluta landsins undanfarin sex ár. Þau eiga fjögur börn en öll nema það yngsta hafa verið tekin af þeim og komið í fóstur. Systkinin berjast nú fyrir að lög gegn sifjaspelli verði felld úr gildi. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

„Það líta margir á þetta sem glæp en við höfum ekki gert neitt rangt,” segir Patrick, sem er atvinnulaus lásamiður. „Við erum eins og hverjir aðrir elskendur. Við viljum stofna fjölskyldu. Fjölskylda okkar sundraðist þegar við vorum ung og síðar náðum við Susan saman aftur.”

Patrick, sem nú er þrítugur, var ættleiddur er hann var barn og alinn upp í Potsdam. Hann hitti ekki líffræðilega fjölskyldu sína á ný fyrr en árið 2000 er hann leitaði hana uppi. „Þegar ég var yngri vissi ég ekki að ég ætti bróður,” segir Susan, sem nú er 22 ára. „Síðan hitti ég Patrick og ég var svo hissa.” Þá segist hún ekki hafa sektarkennd yfir sambandi þeirra. „Ég vona að lögunum verði breytt. Ég vil bara búa með fjölskyldu minni og fá frið fyrir yfirvöldum og dómstólum.”

„Börnin okkar búa hjá fósturforeldrum. Við tölum eins oft við þau og mögulegt er en yfirvöld hafa svipt okkur svo miklu. Einungis yngsta dóttir okkar Sofia býr hjá okkur.

Ástarsambönd náinna ættingja eru bönnuð með lögum í Þýskalandi og hefur Patrick Stuebing þegar afplánað tveggja ára dóm vegna sambands síns við systur sína. Þá á hann annan fangelsisdóm yfir höfði sér verði lögunum ekki breytt en Endrik Wilhelm, lögfræðingur systkinanna, hefur höfðað mál fyrir hæstarétti til að freista þess að fá lög gegn sifjaspelli ógild.

„Samkvæmt þýskum lögum frá 1871 er það glæpur hafi nánir ættingjar samræði og varðar það þriggja ára fangelsisdómi. Þetta eru úrelt lög og þau brjót gegn mannréttingum parsins,” segir Wilhelm. „Hvers vegna mega fatlaðir eiga börn, þeir sem bera arfgenga sjúkdóma og konur yfir 40 ára aldri? Það segir enginn að það sé glæpur. Þetta fólk skaðar ekki neinn. Þetta er mismunun og við megum ekki gleyma því að hvert barn er verðmætt."

Juergen Kunze, erfðasérfræðingur við Charite sjúkrahúsið í Berlín, segir hins vegar gilda ástæðu fyrir lögunum enda séu 50% líkur á því að erfðagallar komi fram í afkvæmum systkina.

Patrick, sem gekkst undir ófrjósemisaðgerð árið 2004, segir hins vegar ekki rétt að börn þeirra séu fötluð. „Eric elsta barnið okkar er með flogaveiki en hann fæddist tveimur mánuðum fyrir tímann og á einnig við námserfiðleika að stríða. Hin dóttir okkar Sarah hefur sérþarfir,” segir hann.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Lucas Papademos forsætisráðherra Grikklands á þinginu í dag.

Grikkir samþykkja niðurskurð

Í gær, 22:53 Gríska þingið hefur samþykkt umdeildar niðurskurðartillögur. Mikil mótmæli hafa verið í Aþenu, höfuðborg landsins, í dag.   Meira »

Farþegi réðst á flugmanninn

Í gær, 22:46 Farþegi um borð í þotu á flugi milli Montevideo og Sao Paulo í Brasilíu réðst á flugmanninn. Annar farþegi kom flugmanninum til bjargar. Meira »

Biður Bashar al-Assad að afsala sér völdum

Fjöldamótmæli hafa verið í Sýrlandi gegn Bashar al-Assad, forseta landsins. Þessi mynd var tekin í ...
Í gær, 22:39 Moncef Marzouki, forseti Túnis, vonast til þess að hægt verði að finna friðsamlega lausn á mótmælaöldunni í Sýrlandi en fjölmargir hafa látið lífið í átökum mótmælenda og stjórnarhers. Meira »

Eldtungur teygja sig til himins

Reynt að slökkva eld í kvikmyndahúsi í miðborg Aþenu.
Í gær, 21:19 Eldtungur teygja sig til himins í Aþenu, höfuðborg Grikklands, en á morgun verða greidd atkvæði í gríska þinginu um umdeildar niðurskurðartillögur. Tillögurnar eiga að koma í veg fyrir að landið verði gjaldþrota. Meira »

Murdoch á leið til Bretlands

Fer The Sun sömu leið og News ff the World?
Í gær, 17:25 Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch er væntanlegur til Bretlands í vikunni til að takast á við vaxandi fjölmiðlafár í kringum veldi hans. Fimm blaðamenn dagblaðsins The Sun, sem er í eigu Murdochs, voru handteknir í gær. Meira »

Skemmdarverk verða ekki liðin myndskeið

Mótmælin í grikklandi
Í gær, 22:13 Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, hvetur þjóð sína til að sýna stillingu en margir mótmælendur hafa safnast saman á götum úti á meðan gríska þingið ræðir niðurskurðartillögur. Meira »

Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði myndskeið

Stúlku bjargað
Í gær, 19:28 Að minnsta kosti níu létust í snjóflóði í afskekktu fjallaþorpi í suðurhluta Kósóvó í gær. Björgunarmenn fundu fimm ára stúlku á lífi en foreldrar hennar og ættingjar eru meðal þeirra sem létust. Meira »

Baða sig í snjónum á vetrarhátíð

Það jafnast ekkert á við það að velta sér upp úr snjónum. Vetrarhátíðin í Quebec ...
Í gær, 17:11 Vetrarhátíðin í Quebec í Kanada er með nokkru öðru sniði en sú íslenska sem stendur yfir um helgina. Meðal dagskrárliða er snjóbað þar sem fólk rífur sig úr hverri spjör og veltir sér upp úr snjónum. Meira »

Heimildarmynd um árásina 1972

Meðlimur hryðjuverkasamtakanna Svarti september í árásinni 1972.
Í gær, 17:10 Eftirlifendur hryðjuverkaárásarinnar á Ólympíuleikunum í Munchen árið 1972 munu koma saman á vettvangi árásarinnar síðar í þessum mánuði en ástæða þess er sú að unnið er að gerð heimildarmyndar um atburðinn. Meira »

Krefjast réttlætis

Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, vottar ættingjum fórnarlamba slyssins samúð sína í Róm í dag.
Í gær, 16:40 Forseti Ítalíu krefst réttlætis fyrir hönd þeirra sem eiga um sárt að binda vegna strands skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Hann vill að allur sannleikurinn um orsakir slyssins verði dreginn fram í dagsljósið. Meira »

Byrjað að dæla olíu úr skipinu

Costa Concordia á strandstað við ítölsku eyjuna Giglio.
Í gær, 16:56 Loksins er byrjað að dæla olíu úr skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði við strendur ítölsku eyjunnar Giglio fyrir mánuði. Meira »

Táragasi beitt í Grikklandi

Í gær, 16:30 Mikil mótmæli eru nú fyrir utan gríska þingið í Aþenu á meðan þingmenn ræða erfiðan niðurskurð í opinberum útgjöldum. Talið er að tugþúsundir mótmælenda séu saman komnar fyrir utan þinghúsið og hefur lögreglan í Aþenu m.a. þurft að beita táragasi til að hafa hemil á ástandinu. Meira »

Flugvél ráðamanna Kongó fórst

Matata Ponyo, fjármálaráðherra Kongó, er talinn vera lífshættulega slasaður.
Í gær, 16:15 Minnst tveir létust og nokkrir særðust þegar einkaflugvél brotlenti í dag við flugvöllinn í borginni Bukavu í Kongó.   Meira »

Ráðist gegn PKK í Írak

Tyrkneskir herbílar skammt frá landamærum Tyrklands og Íraks.
Í gær, 13:10 Tyrkneski flugherinn gerði loftárásir á skotmörk í norðurhluta Íraks í morgun. Árásirnar beindust gegn liðsmönnum PKK, Verkamannaflokki Kúrda, en þau samtök eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök. Meira »

Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið myndskeið

Sýrlenskur flóttamaður ber stjórnvöldum söguna illa
í fyrradag Sýrlenskir flóttamenn segja að fréttaflutningur af ástandinu í landinu sé aðeins dropi í hafið, svo slæmt sé ástandið. Töluverður fjöldi af myndböndum hefur borist af ofbeldi hersins gegn almennum borgunum, en ekki hefur verið hægt að staðfesta að myndböndin séu raunsönn. Meira »

Gríska þingið ræðir aðgerðir

Í gær, 14:28 Gríska þingið fundar nú um niðurskurð í opinberum útgjöldum en hann er sagður nauðsynleg forsenda þess að Grikkir hljóti 130 milljarða evra neyðarlán frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Meira »

Hvatti börn sín til betra lífs

Osama bin Laden.
Í gær, 11:34 Hermdarverkamaðurinn Osama bin Laden sem ráðinn var af dögum af bandarískum sérsveitarmönnum í maí á síðasta ári hvatti börn sín til að mennta sig og búa í Bandaríkjunum eða Evrópu. Jafnframt bað hann þau um að feta ekki sömu slóð og hann sjálfur. Þetta kemur fram í viðtali við mág hans í Sunday Times. Meira »

Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu myndskeið

Suu Kyi tekið sem rokkstjörnu
í fyrradag Þúsundir þyrptust út á götu í Búrma til að taka á móti leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi. Erlendir fjölmiðlar greina frá að henni hafi verið tekið eins og rokkstjörnu, þvílíkt voru fagnaðarlætin. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gullfalleg 2-3ja herb íbúð Vesturbæ Rvk
Laus 1. mar, 135 þús á mán án hita og rafmagns. Trygging 270 þús bankaábyrgð Up...
Öflugar kraftviftur - Íshúsið ehf
Eigum á lager úrval af mjög öflugum kraftviftum. Frekari upplýsingar á www.ishu...
Gullfallegir Chinese Crested hvolpar til sölu
Einn rakki og ein tík eftir, undan sýndum foreldrum. Skemmtilegir hvolpar og ynd...
Bílskúr með gryfju til leigu
Til leigu bílskúr með gryfju í Álftamýri. Verð 25.000 á mánuði Upplýsingar í sím...
 
15087 leiguhúsnæði fyrir vínbúð átvr
Tilboð - útboð
15087 - Leiguhúsnæði f...
Efta administrative assistant
Önnur störf
The Financial Mechanism Office (FMO) ...
3 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Jens gullsmiður
Afgreiðsla/verslun
Traustur starfskraftur með góða þjónustu...