Fjölgar í dönsku konungsfjölskyldunni

Mary krónprinsessa með soninn Christian.
Mary krónprinsessa með soninn Christian. AP

Mary, krónprinsessa Dana, fæddi nú síðdegis dóttur á Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Prinsessan unga var 3.350 grömm og 50 sm. þegar hú leit fyrst dagsins ljós, en bæði henni og móðurinni mun heilsast vel. Krónprinsinn Friðrik var viðstaddur fæðingu dótturinnar, sem er annað barn þeirra hjóna. Þetta kemur fram á fréttavef Berlingske Tidende.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert