Átta létu lífið í loftárás Ísraelsmanna á Gasa

Palestínumenn bera særðan mann eftir loftárás Ísraelsmanna á hús í …
Palestínumenn bera særðan mann eftir loftárás Ísraelsmanna á hús í Gasaborg í kvöld. Reuters

Að minnsta kosti átta manns létu lífið þegar Ísraelsher skaut flugskeyti á hús í Gasaborg nú undir kvöld. Eigandi hússins, sem er þingmaður á heimaþingi Palestínumanna fyrir Hamassamtökin, var ekki heima en sex þeirra sem létust voru ættingjar hans. Að minnsta kosti 13 manns særðust í árásinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert