Fangi í Guantánamo fangabúðunum framdi sjálfsmorð

Frá fangabúðunum við Guantánamoflóa á Kúbu
Frá fangabúðunum við Guantánamoflóa á Kúbu AP

Sádi-arabískur fangi í fangabúðum Bandaríkjahers við Guantánamo-flóa á Kúbu, fannst látinn í klefa sínum í kvöld. Að sögn Bandaríkjahers virðist sem maðurinn hafi framið sjálfsmorð.

Á síðasta ári vöktu bandarískir embættismenn hneykslun þegar þeir sögðu, að þrír menn sem frömdu sjálfsmorð í búðunum hefðu gert það í auglýsingaskyni fyrir málstað sinn.

Um 380 manns eru í búðunum og hafa sumir verið þar í fimm ár án þess að vera ákærðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert