Grunuð um að reyna að kúga fé af foreldrum Madeleine McCann

Gerry og Kate McCann, foreldrar Madeleine ásamt tvíburunum Sean og …
Gerry og Kate McCann, foreldrar Madeleine ásamt tvíburunum Sean og Amelie AP

Ítalska innanríkisráðuneytið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að ítalskur maður og portúgölsk kona, sem handtekin voru fyrr í dag, séu grunuð um að hafa reynt að kúga fé frá foreldrum hinnar fjögurra ára Madeleine McCann, sem saknað hefur verið um nokkurra vikna skeið.

Lögregla segir að fólkið hafi sett sig í samband við foreldra stúlkunnar og reynt að innheimta verðlaunafé, en flest bendi til þess að um svikahrappa sé að ræða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert