Fundust lifandi í líkhúsi

Kornabarn og eldri maður fundust lifandi í líkhúsum í Argentínu eftir að læknar höfðu úrskurðað þau látin. Það heyrðist í hinni fimm mánaða gömlu stúlku gráta í kæligeymslu spítalans, þar sem henni hafði verið komið fyrir, eftir það sem læknar héldu að væru árangurslausar lífgunartilraunir.

Degi áður var 71 árs gömlum manni bjargað úr öðru líkhúsi þegar starfsmaður áttaði sig á því að hann var í raun lifandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert