Eignaðist eineggja fjórbura; líkurnar einn á móti 13 milljónum

J.P. Jepp heldur á Autumn, sem er stærst fjórburasystranna.
J.P. Jepp heldur á Autumn, sem er stærst fjórburasystranna. AP

Kanadísk kona eignaðist fyrr í vikunni eineggja fjórbura, en líkurnar á slíkri fæðingu eru einn á móti 13 milljónum. Börnin, allt stúlkur, voru tekin með keisaraskurði á 31. viku meðgöngunnar. Að sögn lækna eru stúlkurnar allar hraustar og anda af sjálfsdáðum.

Þær hafa hlotið nöfnin Autumn, Brooke, Calissa og Dahlia. Foreldrarnir eru Karen og J.P. Jepp frá Calgary. Þau eiga einnig tveggja ára son.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert