Tíu milljón króna auglýsingaherferð í leitinni að Madeleine

Kate McCann, móðir Madeleine með tvíburana Sean og Amelie, í …
Kate McCann, móðir Madeleine með tvíburana Sean og Amelie, í Rothley í Suður Englandi. Reuters

Fjölskylda Madeleine McCann tilkynnti í dag að verið væri að undirbúa mikla auglýsingaherferð á Spáni og Portúgal þrátt fyrir að foreldrarnir hafi nú stöðu grunaðs fólks í lögreglurannsókn þessa mannshvarfs. Fjölskyldan tilkynnti að hún hygðist setja um tíu milljónir króna í herferðina.

Herferðin verður greidd úr hundrað og þrjátíu milljón króna sjóði sem stofnaður var til að aðstoða við leitina að Madeleine, þetta tilkynnti frændi Madelein, John McCann í dag.

Hann sagðist vona að almenningur héldi áfram að aðstoða við leitina.

Frægt fólk á borð við J. K. Rowling og David Beckham hafa komið opinberlega fram til að aðstoða fjölskylduna við að afla fé í sjóðinn.

Í dag var einnig tilkynnt að fé úr sjóðnum yrði ekki notað til að greiða lögfræðikostnað McCann hjónanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert