Tíu vikna fangelsi fyrir að aka á 276 km hraða

Sá ökumaður sem lögreglan í Bretlandi hefur gripið á mestum hraða hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs mánaðar fangelsi. Hann var tekinn á 276 km hraða í Oxfordskíri í janúar, þar sem hámarkshraði er 112 km. Ökumaðurinn játaði brot sitt.

Maðurinn er 33 ára, frá London. Hann hefur verið sviptur ökuréttindum, að því er BBC greinir frá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert