Hjón og börn þeirra finnast látin á heimili í Frakklandi

Hjón á sjötugsaldri og börn þeirra, maður og kona á fertugsaldri, fundust látin á heimili sínu í gærkvöldi í Coulogne í norðurhluta Frakklands. Er talið að þau hafi öll framið sjálfsvíg með því að hengja sig í eldhúsi fjölskyldunnar.

Bæjarstjórinn í Coulogne, Jean-Claude Dubut, sem þekkti fjölskylduna persónulega segir dauða þeirra óskiljanlegan. Enginn nágranni þeirra vissi til þess að eitthvað amaði að hvorki í persónulega eða fjárhagslega.

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Sólveig Ingólfsdóttir: ...
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert