Rannsókn á hvarfi kajakræðarans hófst í september

Breska lögreglan hóf á ný að rannsaka hvarf kajakræðarans Johns Darwins í september sl., en hann hafði verið lýstur látinn 2003 eftir að hann hvarf úti fyrir strönd Bretlands í mars árið áður. Um síðustu helgi skaut hann upp kollinum á ný, og var handtekinn í gærkvöldi, grunaður um svik.

Lögreglan greindi frá því í dag að nýjar upplýsingar í málinu hefðu leitt til þess að rannsókn þess var hafin á ný í september. Hefðu þessar upplýsingar bent til þess að eitthvað grunsamlegt kynni að hafa verið við hvarf Darwins. Í kjölfarið hafi verið hafin fjármálarannsókn.

Í september hefði lögreglan þó ekki haft hugmynd um að Darwin væri enn á lífi, og engar vísbendingar hafi verið um það fyrr en hann kom inn á lögreglustöð í London á laugardagsmorgunn.

Breskt blað birti í gær mynd sem það sagði hafa verið tekna af manninum og konu hans í Panama í fyrra.

Kona hans seldi fyrir skömmu húsið þeirra í Bretlandi og flutti til Panama. Hún tjáði Daily Mail að hún hefði fengið líftryggingu mannsins síns greidda út eftir að dánardómsstjóri lýsti hann látinn 2003.

Ekki hefur verið staðfest að myndin sem Daily Mirror birti sé raunverulega af Darwin-hjónunum, en lögreglan í Bretlandi segir að hvarf Johns Darwins hafi „vakið fjölmargar spurningar“ og væri þess farið á leit að almenningur veitti lögreglunni allar upplýsingar sem hann kynni að búa yfir.

„Það eru örugglega margir sem vita nákvæmlega hvar hann hefur haldið sig, hvað hann hefur haft fyrir stafni og hvar hann hefur búið,“ sagði talsmaður lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert