Obama sigraði í Georgíu

Bandarískar sjónvarpsstöðvar og fréttastofur spáðu því að Barack Obama hefði unnið forkosningar Demókrataflokksins í Georgíu í dag en óljóst er hver vann í ríkinu í forkosningum Repúblikanaflokksins. Kosið var  í 24 ríkjum í dag en kjörstöðum var lokað í Georgíu á miðnætti að íslenskum tíma.

Gert er ráð fyrir að Obama fái meirihlutann af þeim 87 kjörmönnum, sem til boða standa í Georgíu. Endanleg úrslit í kosningunum í dag verða ekki ljós fyrr en seint í nótt. 

Þá fór Mike Huckabee með sigur af hólmi í forkosningum repúblikana í Vestur-Virginíu þar sem hann fékk 51% atkvæða en Mitt Romney 47%.  Þessi úrslit voru þó túlkuð sem jákvæð fyrir John McCain, sem talið er að vinni sigra í mörgum af ríkjunum í nótt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert