Verja notkun kókalaufsins

Íbúar í Andesfjöllunum hafa notað kóka laufið öldum saman. stækka

Íbúar í Andesfjöllunum hafa notað kóka laufið öldum saman. Reuters

Yfirvöld í Bólivíu og Perú verja notkun kókalaufa eftir að löndin voru gagnrýnd í skýrslu á vegum Alþjóðafíkniefnaráðsins.  Ráðamenn í Perú segja að í skýrslunni sé einblínt á ræktun kókalaufsins fyrir framleiðslu kókaíns, en ekki sé litið til þess að kókalauf hafa verið notuð af innfæddum öldum saman í lækningaskyni og fyrir trúarathafnir. 

Fram kemur á fréttavef BBC að utanríkisráðherra Perú, Jose Belaunde, segir að jafnvægi þurfi að vera á milli þess að leyfa ræktun kókalaufsins til hefðbundinnar notkunar, og þess að koma í veg fyrir að það sé notað til framleiðslu kókaíns.  Í augum innfæddra sé kókalaufið heilagt lauf sem er hluti af menningarlegu kennimarki þeirra. 

Þá segir þingkonan Maria Sumire að Sþ beri ekki virðingu fyrir því að íbúar í Andesfjöllunum hafi notað laufin öldum saman til þess að minnka hungur eða þreytu, í lækninga eða trúarlegum tilgangi en laufin eru ýmist tuggin eða búið til te úr þeim. 

Í árlegri skýrslu Alþjóðafíkniefnaráðsins segir að Perú og Bólivía eigi að banna framleiðslu kókatessins og að kókalaufið sé tuggið.  Í skýrslunni eru löndin tvö minnt á það að notkun kókalaufsins eigi að takmarkast við vísindalega og læknisfræðilega notkun.   Perú og Bólivía framleiða mest af kókaíni í heiminum á eftir Kólumbíu.
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Lögreglumaður í óeirðabúningi sparkar í liggjandi mótmælanda í Aþenu í dag.

Átök á götum Aþenu

15:40 Átök brutust út í dag í miðborg Aþenu, höfuðborg Grikklands, á milli mótmælenda og lögreglumanna. Mikil reiði ríkir í samfélaginu vegna ákvörðunar stjórnvalda að láta undan þrýstingi ráðherra í evruríkjunum og leggja blessun sína yfir frekari aðhaldsaðgerðir. Meira »
Heillandi félagsskapur.

Refsilaus mynd með nasistafána

15:36 Hópur af bandarískum hermönnum, sem lét smella af sér mynd með vopn á lofti við hliðina á nasistafána, hefur fengið aðvörun fyrir athæfi sitt en verður ekki refsað. Þetta kom fram í tilkynningu frá bandaríska hernum í gær. Meira »

Þrír látnir og tveir særðir eftir gíslatöku

15:33 Þrír eru látnir og tveir alvarlega særðir eftir gíslatöku á gistisvæði fyrir húsbíla á Flórída seint í gærkvöldi.  Meira »

Verkföll fyrir kjötkveðjuhátíð

Slökkviliðsmenn, fangaverðir og lögreglumenn mótmæla nú í Ríó.
15:07 Hundruð lögreglu- og slökkviliðsmanna lögðu niður vinnu í Ríó í Brasilíu í dag og kröfðust betri kjara. Aðeins er ein vika þar til kjötkveðjuhátíðin hefst en herlögregla á svæðinu hefur tilkynnt að allar sveitir hennar starfi eðlilega. Meira »

Fraus í hel

14:40 Rúmlega fertug kona fannst frosin í hel í helli í nágrenni Rómar á Ítalíu í dag en talið er að hún hafi leitað skjóls í hellinum í fimbulkulda. Meira »

Vill herskyldu fyrir konur

Espen Barth Eide, varnarmálaráðherra Noregs.
15:13 Espen Barth Eide, varnarmálaráðherra Noregs, segist íhuga að leggja til að konur gegni herskyldu til jafns við karla. Hann segir að eðli hermennsku hafi breyst og nú skipti þættir á borð við að geta hugsað kerfisbundið meira máli en líkamlegur styrkur. Meira »

Ungir Rússar taka eigið líf

Sjálfsmorðstíðni ungmenna í Rússlandi er há.
14:50 Sjálfsmorðstíðni rússneskra ungmenna fer stöðugt vaxandi og er næstum því þrefalt hærri en meðaltalstölur fyrir heiminn sýna. Fjögur þúsund ungir Rússar á aldrinum 15-19 ára taka eigið líf á hverju ári. Meira »

Lögsæki ekki dómara

Stuðningsmaður Garzóns sýnir myndir af meintum fórnarlömbum Franco-stjórnarinnar.
14:32 Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna lýsti í dag yfir áhyggjum sínum vegna sakfellingar spænska rannsóknardómarans Baltasar Garzón sem dæmdur hefur verið fyrir að misnota valdheimildir sínar við rannsóknir á stjórnarglæpum frá Franco-tímanum. Meira »

Segir minni tiltrú á SÞ

Abdullah, konungur Sádi-Arabíu.
14:02 Abdullah, konungur Sádi-Arabíu, segir tiltrú heimsins á Sameinuðu þjóðunum hafa minnkað eftir að öryggisráði SÞ mistókst að fá samþykkta ályktun um að fordæma aðgerðir sýrlenskra stjórnvalda gagnvart óbreyttum borgurum. Meira »

Fræg bygging eldi að bráð

La Cite Radieuse
13:26 Um tvö hundruð slökkviliðsmenn í frönsku borginni Marseille börðust í nótt við eldsvoða í íbúðarblokkin La Cite Radieuse en blokkin er eitt þekktasta verk fransk/svissneska arkitektsins Le Corbusier. Meira »

Seldi CIA gögn um rússneskar eldflaugar

Eldflaug.
14:00 Rússneskur geimverkfræðingur var dæmdur í 13 ára fangelsi í dag fyrir að selja bandarísku leyniþjónustunni leynilegar upplýsingar um eldflaugar Rússa. Meira »

Spilling verður N-Kóreu að falli

Kim Jong-Un yngsti sonur Kim Jong-Il og nýr leiðtogi Norður-Kóreu heilsar hermönnum.
12:13 Elsti sonur Kim Jong-Il heitins segir að mútur og spilling séu allsráðandi í Norður-Kóreu og muni verða ríkinu að falli. Tölvupóstsamskipti hans við japanskan blaðamann voru opinberuð í dag. Hann segir unga N-Kóreubúa reyna að fara á svig við ofríkið og enginn hafi stjórn á hernum. Meira »

Enn gýs í Eldhringnum myndskeið

Eldgos í Indónesíu
11:46 Brennheit aska spýttist tvo kílómetra upp í loftið þegar eldgos hófst í Lokon-eldfjalli á eyjunni Sulawesi í Indónesíu í morgun. Í Meira »

Tvær bílasprengjur í Sýrlandi myndskeið

Bílsprengjur í Sýrlandi
11:12 Tvær kraftmiklar bílasprengjur sprungu í Aleppo, næststærstu borg Sýrlands, í dag. Í ríkisfjölmiðlum í Sýrlandi kom fram að 25 hefðu látist í sprengingunum og 175 særst. Fram kom að fyrri sprengingin hefði verið sjálfsmorðsárás á lögreglustöð. Síðari sprengingin hefði verið fyrir framan herstöð. Meira »

Garzón gefst ekki upp

Garzón í sæti sínu í réttarhöldunum. Stjórnarskrárdómstóll Spánar eða Mannréttindadómstóll Evrópu mun eiga lokaorðið í ...
10:13 Spænski rannsóknardómarinn Baltasar Garzón lýsti því yfir í gær að hann myndi ekki gefast upp þrátt fyrir að Hæstiréttur Spánar hafi sakfellt hann fyrir að heimila ólögmætar upptökur á samtölum lögmanna. Meira »

Leggja niður störf og mótmæla

Mótmælendur komu saman við gríska þinghúsið í gær.
11:36 Tveggja sólarhringa verkfall hófst í Grikklandi í dag. Verkalýðsfélög standa fyrir aðgerðunum en verið er að mótmæla þeim aðhaldsaðgerðum sem grískir stjórnmálamenn hafa lagt blessun sína yfir vegna þrýstings frá alþjóðlegum lánardrottnum. Meira »

Heimilislausir í skjól í Bakú

Óvenjumiklir vetrarkuldar ríkja nú í Bakú í Aserbaídsjan.
10:47 Tímabundin skýli fyrir heimilislausa hafa verið sett upp í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, í fyrsta skipti síðan í síðari heimsstyrjöld. Ástæðan er miklar frosthörkur í landinu, sem hafa valdið dauða 5 manns. Meira »

260 dauðir höfrungar á land myndskeið

260 dauðir höfrungar á land
09:34 Að minnsta kosti 260 dauðum höfrungum skolaði á landi í Perú í vikunni. Þeir hafa fundist meðfram 106 km langri strandlengju á svæðinu Lambayaque. Yfirvöld segja ekki ljóst hvers vegna dýrin dóu, en útiloka ekki að veiðimenn hafi elt þau. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gisting á höfuðborgarsvæðinu
Erum með laus herbergi. Tilboðsverð. Sjá myndir wwww.lily.is. Gistiheimilið Li...
Til Sölu: Leðursófi úr Línunni
Til sölu vandaður og vel með farin 3 sæta leðursófi Lengd ca 2,15 m Var keyptu...
Svefnsófi til sölu
Sófinn er 1,50 á breidd, ljósdrappaður að lit, tveggja sæta og breytanlegur í ei...
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
 
Samkoma hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Samkoma sunnudag kl. 17 Kafteinn ...
Reykjavíkurborg deiliskipulag

Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingar...
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Aðalfundur
Félagsstarf
      ...