Lokaði dóttur sína inni í 24 ár

Austurrískir fjölmiðlar hafa skýrt frá því í dag að 73 ára gamall maður hafi haldið dóttur sinni fanginni í kjallara í 24 ár. Dóttirin er 42 ára og hefur hún alið föður sínum sjö börn samkvæmt austurríska ríkisútvarpinu, ORF.

Meðal barnanna er 19 ára stúlka sem dvelst nú á sjúkrahúsi að sögn er hún þungt haldin en ekki kemur fram hvað amar að henni.

Málið komst upp er stúlkan fannst meðvitundarlaus á heimili mannsins og hófst þá leit að móður stúlkunnar. Stúlkan dvelur á sjúkrahúsi í austurríska bænum Amstetten.

Lögregla mun ekki hafa staðfest fregnirnar en sögðu einungis að rannsókn stæði yfir og boðað hefur verið til blaðamannafundar vegna þessa máls.


Hús Fritzl fjölskyldunnar í Amstetten.
Hús Fritzl fjölskyldunnar í Amstetten. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert