Austurríkismaður viðurkennir brot sín

Josef Fritzl. stækka

Josef Fritzl. AP

Sjötíu og þriggja ára gamall Austurríkismaður, sem varð uppvís að því að halda dóttur sinni fanginni í neðanjarðarbyrgi í kynlífsþrælkun í 24 ár, hefur játað brot sín í stórum dráttum, að sögn lögreglu í bænum Amstetten í Austurríki.

Austurríkismenn eru slegnir vegna málsins, sem minnir á mál austurrísku stúlkunnar Natöschu Kampusch, sem haldið var fanginni í 8 ár í neðanjarðarbyrgi.

Sky sjónvarpsstöðin hefur eftir Franz Polzer, yfirmanni rannsóknardeildar lögreglunnar á svæðinu, að maðurinn, sem heitir Josef Fritzl, hafi viðurkennt að hafa læst dóttur sína inni í 24 ár og eignast með henni 7 börn. Börnin eru nú á aldrinum fimm til 20 ára.

Lögregla er enn að rannsaka neðanjarðarbyrgið undir húsi Fritzl í borginni Amstetten í Austuríki, þar sem dótturinni, Elisabeth Fritzl, og þremur börnum hennar var haldið fanginni í þremur herbergjum. Talsmaður lögreglunnar segir, að byrgið, sem var með þremur herbergjum, hafi verið innréttað eins og íbúð. Lofthæðin er aðeins um 1,7 metrar.

Þrjú barnanna bjuggu með móðurinni í kjallaranum en þrjú þeirra hinsvegar ásamt afa sínum [föður] og ömmu á efri hæðum hússins. Talið er að hvorki börnin né amma þeirra hafi vitað af Elisabeth og börnunum í kjallaranum.

Lokkaði dóttur sína niður í kjallarann

Upp komst um fangavist Elisabeth, sem nú er 42 ára gömul, þegar 19 ára dóttir hennar, sem bjó með henni í kjallaranum, þurfti að leggjast inn á sjúkrahús. Læknarnir hófu þá leit að móðurinni sem leiddi til handtöku Josefs síðastliðinn laugardag.

Samkvæmt upplýsingum sem austurríska lögreglan veitti fréttastofunni ORF sagði Elisabeth frá því að í ágúst 1984 hefði faðir hennar lokkað hana niður í kjallara hússins, handjárnað og læst hana inni í einu herbergjanna.

Frá ellefu ára aldri hefði hann beitt hana kynferðisofbeldi og þau eignast sjö börn saman. Þrjú barnanna sem bjuggu með móðurinni í kjallaranum komu út undir bert loft í fyrsta skipti á ævi sinni í gær. Lík barnsins sem lést stuttu eftir fæðingu fjarlægði Josef úr kjallaranum og brenndi.

Þröngur og gluggalaus kjallari

Lögreglan opnaði vistarverur konunnar í gærkvöldi. Þær voru faldar á bak við hillu í vinnuherbergi. Dyrnar voru læstar með raflás sem lögreglan opnaði með aðstoð Josefs en vilji hans til samstarfs er talin vísbending um að hann muni senn játa. 

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar virðist Josef Fritzl hafa skipulagt athæfið vel. Hann tilkynnti hvarf stúlkunnar árið 1984 og sagði hana hafa gengið til liðs við sértrúarsöfnuð. Fritzl  falsaði jafnframt bréf í nafni dóttur sinnar þar sem stóð að hún gæti ekki sinnt þremur barnanna og hefði því skilið þau eftir hjá ömmu sinni og afa. 

Elisabeth og synir hennar tveir eru nú í umsjá lækna og sálfræðinga en enn hefur ekki komið í ljós hvort Josef Fritzl  beitti börnin kynferðisofbeldi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »
Réttarhöldunum yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer senn að ljúka.

Breivik fær tíma til útskýringa

Í gær, 22:15 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun fá meiri tíma en til stóð til að tjá sig við lok réttarhaldanna, en áður hafði verið gert ráð fyrir. Búist er við að þeim ljúki 6. júní. Meira »

Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu

Í gær, 22:00 Meira en 57.000 manns eru í fangelsi á Kúbu, þar af hafa um 23.000 einhvern starfa og fá greitt fyrir. Hluti þeirra er á bak við lá og slá vegna stjórnmálaskoðana sinna. Meira »

Kennarar og nemendur mótmæla

Frá mótmælunum á Spáni í dag.
Í gær, 20:09 Tugþúsundir kennara og nemenda á Spáni mótmæltu í dag fyrirhuguðum niðurskurði í menntamálum í landinu. Fólkið lagði niður störf og gekk fylktu liði um götur og stræti Spánar, margir í grænum stuttermabolum sem eru orðnir að einkenni mótmælanna. Meira »

Væri upphafið að endalokum evrunnar

Írski þingmaðurinn Richard Boyd Barrett.
Í gær, 19:39 Evrópusambandið mun halda áfram að styðja Írland og veita því neyðaraðstoð ef á þarf að halda jafnvel þó að írskir kjósendur hafni fjármálastöðugleikasáttmála sambandsins. Meira »

Sagðist vera með sprengju í líkamanum

Ein af flugvélum bandaríska flugfélagsins US Airways.
Í gær, 20:32 Bandarískri farþegaflugvél flugfélagsins US Airways, sem var á leiðinni frá París til borgarinnar Charlotte í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum var lent snarlega eftir að frönsk kona sem var farþegi um borð, sagðist vera með „ígræddan búnað“ sem gæti grandað vélinni. Meira »

14 ára skaut á skólafélaga

Lögregla var með mikinn viðbúnað í bænum Memmingen í Suður-Þýskalandi þegar 14 ára piltur skaut ...
Í gær, 19:47 Fjórtán ára drengur skaut á skólafélaga sína í bænum Memmingen, skammt frá borginni München í Suður-Þýskalandi og hljóp síðan á brott. Honum var veitt eftirför og skaut hann þá nokkrum skotum til viðbótar. Engan sakaði og hefur pilturinn nú verið tekinn höndum og mun sæta geðrannsókn. Meira »

Ummæli prests vekja reiði

Fánar samkynhneigðra blakta á lofti í Gleðigöngunni í Reykjavík. Mannréttindi samkynhneigðra eru ekki alls staðar ...
Í gær, 17:31 Ummæli prests baptistasöfnuðar í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum um að safna ætti öllu samkynhneigðu fólki saman, reka það inn í rétt og láta það síðan deyja drottni sínum, hafa vakið mikla reiði víða. Presturinn lét svo ummælt í predikun sem tekin var upp á myndband og síðan sett á YouTube. Meira »

Gríski harmleikurinn heldur áfram

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS.
Í gær, 17:10 Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að vinstriflokkarnir í Grikklandi verði að horfast í augu við þann niðurskurð sem nauðsynlegur sé, eigi Grikkir að komast upp úr þeim efnahagslega öldudal sem þeir eru nú í. Meira »

Neyðarástand á Ítalíu

Íbúðarhús sem skemmdist í jarðskjálftanum í bænum Finale Emila skammt frá borginni Modena.
Í gær, 16:46 Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Norðaustur-Ítalíu, þar sem öflugur jarðskjálfti sem mældist 6 stig, reið yfir í fyrradag. Um 5.000 manns eru heimilislaus eftir að fjöldi íbúðarhúsa skemmdist í skjálftanum og ítalska ríkisstjórnin hefur lofað því að fé verði veitt til uppbyggingar. Meira »

Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift

Í gær, 17:00 Þrjátíu pör sem gefin voru saman fyrir um ári með borgaralegum hætti í Uppsölum í Svíþjóð eru enn þrátt fyrir það ógift. Í ljós kom að borgarstjórinn sem gaf pörin saman hafði ekki lengur réttindi til þess þegar brúðkaupin fóru fram. Meira »

Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó

Á hverju ári eru um 100.000 konur í Suður-Ameríku seldar mansali milli landa.
Í gær, 16:15 Á hverju ári eru þúsundir kvenna þvingaðar í vændi og seldar frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Í úttekt BBC á mansali í Mexíkó kemur fram að stúlkurnar séu flestar á aldrinum 14-19 ára og séu þvingaðar til að þjónusta 25-30 karla á hverri vakt. Flestar eru sendar til New York. Meira »

Kæfðu dóttur sína með plastpoka

Shafilea Ahmed.
Í gær, 16:09 Foreldrar breskrar stúlku hafa verið ákærðir fyrir að kæfa dóttur sína með því að troða plastpoka upp í hana og kæfa hana. Fjögur börn þeirra horfðu upp á systur sína myrta, en í dag lýsti eitt þeirra fyrir dómi því sem gerðist þegar stúlkan lést. Meira »

Stuðningur eykst við jafnaðarmenn

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
Í gær, 15:51 Stuðningur við þýska jafnaðarmenn hefur aukist verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir dagblaðið Bild en samkvæmt henni mælast þeir nú með 32% fylgi á meðan helsti keppinauturinn, kristilegir demókratar undir forystu Angelu Merkel kanslara Þýskalands, mælist með 33%. Meira »

Mótmæli kveðin niður í Bakú

Júróvisjón söngvakeppnin fer ekki framhjá neinum sem staddur er í Bakú í Aserbaídsjan, en mótmæli ...
Í gær, 15:16 Allra augu í Evrópu verða á Aserbaídsjan í kvöld, þegar fyrri forkeppni Evróvisjónsöngvakeppninnar fer fram í Bakú. Raddir mótmælenda þar í landi heyrast hins vegar ekki víða. Í gærkvöldi stöðvaði lögregla í Bakú af hörku um 100 mótmælendur sem kröfðust m.a. frelsunar pólitískra fanga. Meira »

Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn

Zikovs skaut Egle, sem var óvopnaður, þrisvar sinnum. Með Egle í för var ung dóttir ...
Í gær, 15:52 Héraðsdómstóll í Lettlandi hefur dæmt mann í 17 ára fangelsi fyrir að hafa skotið mann til bana í kvikmyndahúsi. Lögfræðingurinn Nikolajs Zikovs skaut bankastarfsmanninn Aigars Egle til bana í kjölfar rifrildis, en Zikovs þótti Egle hafa of hátt þegar hann var að borða poppkorn. Meira »

Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands

Í gær, 15:16 Þjóðaratkvæðagreiðsla um svonefndan fjármálastöðugleikasáttmála innan Evrópusambandsins fer fram á Írlandi 31. maí næstkomandi en Írar eru einir þjóða innan sambandsins sem munu kjósa um sáttmálann, sem ætlað er að stuðla að efnahagslegum stöðugleika á evrusvæðinu og auknum samruna innan þess, þar sem írska stjórnarskráin krefst þess. Meira »

Tók 7 ára stúlku í gíslingu

Í gær, 15:14 Tékknesk kona gekk inn í skóla í borginni Havirov, stakk kennara nokkrum sinnum með hníf og tók sjö ára stúlku í gíslingu. Lögreglan handtók hana skömmu síðar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Stórt hundabúr
Til sölu stórt hundabúr. Passar fyrir tvo stóra hunda í bíl, búrinu fylgir skilr...
HairOff háreyðingavörur; sársaukalaus og örugg háreyðing !
HairOff vörurnar fjarlægja hár á einfaldan, öruggan og sársaukalausan hátt ! Got...
Skoda Octavia árg. 2005 til sölu
Skoda Octavia, nýskráður í desember 2005 til sölu. Ekinn 117.212 km. Diesel T...
Ormar í veiðina frá Óþekktarormum
Nú er maðkur í mysunni og ormar til sölu! Úrvals laxaormar feitir og vænir á ...
 
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Hjúkrunarfræðingur/ snyrtifræðingur
Hárgreiðsla/Snyrting
Hjúkrunarfræðingur eða snyrtifræðingur ...