Nauðguðu 10 ára stúlku og mynduðu árásina

Tveir franskir drengir, 11 og 12 ára gamlir, hafa verið ákærðir fyrir að hafa nauðgað 10 ára gamalli stúlku. Þeir mynduðu árásina með myndavél í síma annars þeirra og sýndu vinum sínum í skóla í úthverfi Parísar.

Annar strákanna hafði nýverið horft á klámmynd með vini sínum og systur hans og ákvað hann að endurskapa atburðarrásina úr myndinni, greindi heimildarmaður frá. Strákarnir mynduðu árásina og sýndu svo rúmlega 100 skólafélögum sínum afraksturinn.

Strákarnir voru handteknir og andleg heilsa þeirra verður metin. Samkvæmt lögum í Frakklandi er ekki hægt að fangelsa þá þar sem þeir hafa ekki náð 13 ára aldri en hægt er að dæma þá til að sinna samfélagsþjónustu eða til einhverrar annarrar refsingar.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert