Obama fellst á útnefningu

Barack Obama, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, tók formlega við útnefningu sem forsetaefni flokksins á landsþingi í Denver í Colorado í nótt.

Obama ávarpaði um 75.000 stuðningsmenn og hét því í ræðu sinni að hann myndi snúa við niðursveiflu í bandarískum efnahagsmálum verði hann kjörinn næsti forseti Bandaríkjanna. 

Ennfremur lofaði hann að bæta ímynd Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi og fullyrti að hann myndi kalla bandaríska hermenn heim frá Írak verði hann kjörinn. 

Þá gagnrýndi Obama ríkisstjórn George W. Bush, forseta, og keppinaut sinn John McCain, frambjóðanda Repúblikanaflokksins. Sagði hann McCain ekki hafa náð tengslum við hinn venjulega Bandaríkjamann, og að hann hafi ekki lagt nóga áherslu á efnahagsmál, heilbrigðismál, og menntun.

Obama er fyrsti blökkumaðurinn sem hlýtur útnefningu sem forsetaframbjóðandi annars stóru flokkanna í Bandaríkjunum.

Ræða Obama í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert