Tekinn af lífi í Texas

George Whitaker, sem var dæmdur til dauða árið 1994 fyrir að myrða systur fyrrum unnustu sinnar, var í dag tekinn af lífi í Texas. Hafa þá 16 verið teknir af lífi í Texas á þessu ári og 420 frá því dauðarefsing var tekin þar upp að nýju árið 1974. Til stendur að taka fjóra til viðbótar af lífi í nóvember. 

Whitaker réðist inn á heimili fyrrum unnustu sinnar tveimur mánuðum eftir að þau slitu sambandi sínu. Hann skaut móður stúlkunnar tvívegis, sló fjögurra ára gamla systur hennar og skaut 17 ára systur hennar til bana. Whitaker var þá 23 ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert