Stalín þriðji vinsælasti Rússinn

Leiðtogararnir þrír á Jaltafundinum 1945, frá vinstri: Winston Churchill, forsætisráðherra …
Leiðtogararnir þrír á Jaltafundinum 1945, frá vinstri: Winston Churchill, forsætisráðherra Bretlands, Franklin D. Roosevelt forseti Bandaríkjanna og Jósef Stalín, leiðtogi Sovétríkjanna. mbl.is

Sovétleiðtoginn Jósef Stalín varð þriðji í kjöri á vinsælasta Rússa allra tíma sem þarlend sjónvarpsstöð stóð fyrir. Kjörinu lauk í kvöld. Alls bárust yfir 50 milljón atkvæða en íbúar landsins eru um 143 milljónir. Mjög hefur verið gagnrýnt að harðstjórinn Stalín skyldi vera á meðal þeirra 50 sem hægt var að velja í kjörinu.

Efstur í kjörinu varð 13. aldar prinsinn Alexander Nevsky, en undir hans stjórn hrundu Rússar innrás Þjóðverja, og í öðru sæti varð Pyotr Stolypin sem var forsætisráðherra í byrjun 20. aldar.

„Við þurfum að velta því mjög alvarlega fyrir okkur, hvers vegna þjóðin kýs að setja Josef Vissarionovich Stalin í þriðja sæti,“ sagði Nikita Mikhalkov, kunnur leikari og leikstjóri, eftir að úrslitin voru kunngjörð í kvöld, en hann en hann var einn dómara í kjörinu. Fyrir því stóð sjónvarpsstöð í eigu rússneska ríkisins.

Á nærri 30 ára valdatíð Stalíns létust milljónir landsmanna úr hungri, voru teknir af lífi vegna andstöðu við hið ríkjandi vald eða létust í Gúlaginu, illræmdum fangabúðum Stalíns. 

Stalín lést á valdastóli 1953.

Þetta verkefni, kjör vinsælasta Rússa allra tíma, var sett á laggirnar í júní og þá birtur listi yfir þá 50 sem fólk gat kosið, en upphaflega höfðu nöfn 500 manna þótt koma til greina.

Jósef Stalín
Jósef Stalín mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert