Minnst 257 börn hafa beðið bana á Gaza

Reuters

Hátt í 770 Palestínumenn, þ. á m. að minnsta kosti 257 börn, hafa beðið bana í hernaði Ísraela á Gaza-svæðinu frá 27. desember, að sögn lækna í gær. Yfir 3.100 manns hafa særst. Jórdönsk stúlka heldur hér á mynd af einu palestínsku fórnarlambanna á fundi í Amman í gær. Hjálparstofnun Sameinuðu þjóðanna stöðvaði í gær flutninga hjálpargagna á Gaza er maður beið bana og tveir særðust í árás á bílalest stofnunarinnar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert