Bin Laden hvetur til heilags stríðs gegn Ísraelum
Osama bin Laden. Reuters
Osama bin Laden, foringi al-Qaida-hryðjuverkasamtakanna, hefur hvatt múslimaheiminn til að hefja heilagt stríð gegn Ísrael og gagnrýnt ríkisstjórnir arabalanda fyrir að standa gegn slíku stríði í nýjum skilaboðum sínum sem birt voru fyrr í dag og ætlað að kynda undir reiði í Miðausturlöndum vegna árása Ísraela á Gaza-svæðinu.
Bin Laden talaði inn á segulband og birtist upptakan á vef íslamskra öfgasinna þar sem al-Qaida kemur alla jafnan skilaboðum sínum á framfæri. Voru þetta fyrstu skilaboðin frá bin Laden frá því í maí og þau fyrstu sem hann birtir frá því að Ísrael réðst gegn Hamas-samtökunum á Gaza fyrir þremur vikum.
„Það er einungis til ein leið til að ná aftur al-Aqsa og Palistínu og það er með heilögu stríði á guðs vegum,“ segir bin Laden m.a. á segulbandsupptökunni sem tekur um 22 mínútur, og vísar þá m.a. til al-Aqsa moskunnar í Jerúsalem. „Skylda okkar er að hvetja fólk til heilags stríðs og láta ungdóminn fylkja sér undir merkjum heilags stríðs.“
Áreiðanleiki upptökunnar hefur ekki fengist staðfestur, en röddin líkist röddu bin Laden á fyrri upptökum hans.
Upptakan ber yfirskriftina „Ákall um heilagt stríð til að stöðva árásirnar á Gaza“ er leikin undir kyrrmynd af bin Laden og al-Aqsa moskunni en er án ensks texta og áhrifsbrellna sem venjulega fylgja slíkum skilaboðum.
Þetta þykir benda til þess að upptakan hafi verið gerð í hasti til að nýta reiðina sem ríkir á svæðinu út af árásum Ísraela á Gaza þar sem meira en 940 Palestínumenn hafa fallið - um helmingurinn þeirra óbreyttir borgarar.
Bloggað um fréttina
-
Vilhjálmur Árnason Dead man walking. -
Gunnar Freyr Rúnarsson Auðvitað -
Björgvin Gunnarsson Blablabla
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 20. mars 2008, Erlent Ný upptaka með bin Laden
- Miðvikudagur, 14. janúar 2009, Erlent Hvíta húsið segir bin Laden einangraðan
- Föstudagur, 16. maí 2008, Erlent Bin Laden segir að heilögu stríði verði fram haldið
- Laugardagur, 29. desember 2007, Erlent Bin Laden boðar nýtt heilagt stríð
- Föstudagur, 17. apríl 2009, Erlent 29 dæmdir fyrir aðild að hryðjuverkasamtökum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































