Danmörk: Dæmd fyrir að láta umskera dætur sínar
Dómstóll í Glostrup í Kaupmannahöfn hefur kveðið dóm yfir konu, fæddri í Súdan, fyrir að hafa látið umskera tvær dætur sínar. Konan er danskur ríkisborgari og braut þar með lög um bann við umskurði stúlkna frá 2003. Þetta er í fyrsta sinn sem dæmt er samkvæmt lögum þessum.
Konan var dæmd í 2ja ára fangelsi, þar af eitt og hálft ár skilorðsbundið. Sex mánuðina sem eftir standa mun hún þó ekki þurfa að afplána nema að litlu leyti þar sem til frádráttar kemur fjögurra og hálfs mánaðar gæsluvarðhald.
Í upphafi voru bæði konan, sem er 41 árs að aldri, og eiginmaður hennar kærð fyrir að hafa skipulagt ferðir til Súdan 2003 og 2006 til að láta umskera dæturnar tvær. Faðirinn bar fyrir réttinum að hann hafi ekki vitað um tilgang ferðanna og var hann sýknaður.
Samkvæmt frétt Politiken krafðist saksóknarinn að móðirin yrði dæmd í fjögurra ára skilorðslaust fangelsi en dómurinn féllst ekki á það. Hann ákvað einnig að nöfn yrðu ekki birt til að vernda dæturnar og fjölskylduna.
Stúlkurnar eru í dag 10 og 12 ára gamlar. Báðir foreldrarnir héldu því fram að þau hefðu ekkert vitað af umskurðinum. Móðirin bar því við að hún hefði haldið að þegar systur hennar tóku börnin hefðu þær farið til að láta ormhreinsa þær.
Foreldrarnir voru handteknir 2008 þegar kennari heyrði samtal sem gaf til kynna að fjölskyldan væri á leið til Súdan til að láta umskera yngri dóttur sem þá var 5 ára. Kennarinn hafði samband við félagsmálayfirvöld og foreldrarnir voru handteknir í kjölfarið.
Foreldrarnir eiga alls fjögur börn og eru frá Eritreu en voru í fjölda ára í flóttamannabúðum í Súdan. Faðirinn fékk landvistarleyfi í Danmörku og síðar ríkisborgararétt sem pólitískur flóttamaður.
Bloggað um fréttina
-
Riddarinn Kemur einn daginn upp á Íslandi. -
Margrét St Hafsteinsdóttir Innrætt ofbeldi -
Kristín Guðbjörg Snæland Umskurður er sorglegur -
Gudrún Hauksdótttir Umskurdur barna
Erlent »
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 22. september 2009, Erlent Í 33 ára fangelsi fyrir að myrða dætur sínar
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Erlent Karlar verða að berjast gegn umskurði kvenna
- Föstudagur, 17. október 2008, Erlent Dæmd fyrir aðild að andláti dóttur sinnar
- Miðvikudagur, 23. júlí 2008, Erlent Forseti Súdans heimsækir Darfúr
- Þriðjudagur, 23. desember 2008, Erlent 6.000 barnahermenn í Darfur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum



































